"Þetta reddast!?"

Það gerir það eiginlega alltaf! En það eru sumir hlutir sem við ættum kannski bara að gera almennilega, áður en það þarf að redda þeim.

Ekki bíða of lengi.

Ég kann þetta ekki, ég nenni þessu ekki, ég þarf ekkert að gera þetta, eða ég ætla að gera þetta seinna. Það eru aðrir sem kunna, nenna, og geta gert hluti sem munu hjálpa.

Ef þú bíður of lengi gætir þú misst af tækifærum. Tækifærin geta verið stór eða lítil, hjálpað til núna eða eftir lengri tíma.

Við mælum með að bíða ekki lengur.

Ekki missa af.

Að missa af tækifærum getur verið pirrandi. Að vera ekki tilbúinn að stökkva á tækifæri þegar þau gefast er enn meira pirrandi. Að taka þátt, vera sýnileg/ur eykur tækifæri og líkur á að detta ekki aftur úr.

Lítið er betra en ekki neitt.

Það hefur aldrei verið jafn einfalt og fljótlegt að búa til hluti á netinu. Lítið fótspor á netinu er betra en ekki neitt.

Fleiri og fleiri eyða meiri tíma við skjáinn á hverjum degi. Að vera með, vera sýnileg/ur á þessum vettvangi opnar á fleiri tækifæri. Það þarf ekki að hafa markmið að sigra heiminn, það má vera með litla krúttlega heimasíðu. Sjálfvirknivæðing á ferlum sem taka langa tíma gefur meiri tíma til að gera það sem er skemmtilegra.

Tæknin á að þjóna fólki.

Ekki öfugt. Gervigreind, sjálfvirknivæðing, heimasíður — ekkert af þessu skiptir máli ef það leysir ekki raunverulegt vandamál fyrir raunverulegt fólk.

Við elskum tækni. En við elskum hana vegna þess sem hún gerir fyrir fólk og fyrirtæki — ekki vegna þess hversu glæsileg hún er.

Við reddum þessu.

Senda fyrirspurn